Mánaðargreiðslur í hússjóð
Íbúar greiða enga húsaleigu, en leggja mánaðarlega fram fé í hússjóð til sameiginlegs reksturs og viðhalds sem Sunnuhlíð sér um. Í hússjóðnum eru m.a. innifaldir eftirtaldir kostnaðarliðir:
- Allt viðhald húseignarinnar, utan húss sem innan, bæði innan íbúða og á samnýtanlegu húsnæði.
- Viðhald lóðar (Kópavogsbraut)
- Varsla allan sólarhringinn. Íbúar geta með símkerfi náð sambandi við vakthafandi úr íbúðum sínum. Securitas sér um fjarvöktun allan sólarhringinn.
- Ræsting samnýtanlegs rýmis: gangar, stigar og anddyri.
- Snjómokstur.
- Allur rafmagnskostnaður af sam-nýtanlegu rými, utan húss sem innan.
- Allur hitakostnaður hússins.
- Reikningshald og öll umsýsla vegna reksturs og viðhalds fasteigna.
- Húseiganda- og brunatryggingar fasteigna o.fl.