Sunnuhlíð

Sunnuhlíð máluð

Félagar í LioHressir félagar úr Muninn mála Sunnuhlíðnsklúbbnum Muninn hafa lokið við að mála hjúkrunarheimilið að utan.  Þetta var í sjötta sinn sem klúbbfélagar gefa vinnu sína á þennan hátt.  Í þetta sinn var verkið framkvæmt á tveimur sumrum, 2009 var tréverk á suðurhlið málað og vorið 2010 máluðu félagarnir norður og austurhlið hússins.  Verkið var unnið í umsjá Más Guðmundssonar, málarameistara hjá G. Helgasyni ehf.   Eins og áður gefur Málning hf. allt efni til vinnunnar.  Verðmæti verkefnisins var metið að þessu sinni og reiknaðist mönnum til að framlag Munins til Sunnuhlíðar nemi um 3,8 milljónum króna.

Stjórn Sunnuhlíðar færir félögum í Muninn, Má Guðmundssyni og Málningu hf. innilegar þakkir fyrir fyrir þetta rausnarlega framlag þeirra til starfsemi Sunnuhlíðar.  Verðmæti þessa framlags verður ekki aðeins mælt í peningum, heldur er sá hlýi hugur og tryggð við hjúkrunarheimilið sem gjöf þeirra fylgdi ómetanlegur.

Sunnuhlíð - Kópavogsbraut 1c - Sími: 5604100 - Fax: 5604175