Sunnuhlíð

Biskup Íslands í heimsókn

Biskup Ísland, herra Karl Sigurbjörnsson, heimsótti Sunnuhlíð í byrjun febrúar.  Var biskupinn að vísitera Kársnessókn, en heimilismenn í Sunnuhlíð tilheyra flestir þeirri sókn.  Messaði biskup og í ræðu sinni talaði  hann um ljósið sem hann tengdi við Sunnuhlíð og ræddi einnig hverfugleika lífsins og hve áríðandi er að láta birtuna í lífinu vera sitt leiðarljós.

Magnea Tómasdóttir söng nokkur lög við undirleik Lenku Mátéová kantor Kópavogskirkju.  Að lokinni messu heilsaði biskup uppá heimilimenn og fræddist um starfsemi Sunnuhlíðar.

Helgistundir eru haldnar á hverjum fimmtudegi í Sunnuhlíð og skipta prestarnir í Kópavogi stundunum á milli sín.  Þá hefur prestur Kársnessóknar messað á jóladag og mætt með kór og organista.  Til aðstoðar prestum í helgistundum eru sjálfboðaliðar frá Rauðakrossinum, Kópavogsdeild og sjá þau einnig um söng og samveru á undan helgistundum.  Þessar stundir eru ákaflega dýrmætar fyrir heimilismenn og eru þær alltaf vel sóttar.

Prestum í Kópavogi, sjálfboðaliðum og öllum þeim sem koma að helgihaldinum eru færðar kærar þakkir fyrir þeirra vinnu.

Sunnuhlíð - Kópavogsbraut 1c - Sími: 5604100 - Fax: 5604175