Sunnuhlíð

Kirkjuferð með heimilisfólk

Á Uppstigningardag bauð Kópavogsdeild Rauðakross Ísland heimilisfólki í Sunnuhlíð ásamt aðstandendum í hina árlegu kirkjuferð í tilefni af kirkjudegi aldraðra.  Eins og síðustu ár var farið í messu í Kópavogskirkju. Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildarinnar ásamt starfsfólki Sunnuhlíðar aðstoðaði heimilisfólkið á leiðinni. Eftir messu var svo boðið upp á kaffiveitingar í safnaðarheimili kirkjunnar.

Sunnuhlíð - Kópavogsbraut 1c - Sími: 5604100 - Fax: 5604175