Sunnuhlíð

Barnateppi til Malaví

Í vikunni kom fulltrúi frá Kópavogsdeild Rauðakross Íslands og sótti 82 barnateppi sem hafa verið prjónuð af heimilisfólki í Sunnuhlíð hjúkrunarheimili. Teppin fara í verkefnið föt sem framlag og verða send á vegum RKÍ með öðrum fatapökkum til barna og fjölskyldna í Malaví. Teppin hafa verið prjónuð úr afgangs garni sem Sunnuhlíð hefur verið gefið og því fylgir mikil ánægja hjá heimilisfólki að geta lagt öðrum lið á þennan hátt. En þetta er þriðja slíka sendingin sem fer frá hjúkrunarheimilinu.

Sunnuhlíð - Kópavogsbraut 1c - Sími: 5604100 - Fax: 5604175