Sunnuhlíð

Nýr deildarstjóri

Þann 1. júní byrjar nýr deildarstjóri á Deild 1, sem eru Lundur, Hvammur og Þinghóll.  Nýí deildarstjórinn heitir María Fjóla Harðardóttir.  María hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á Eir að undanförnu, en áður var hún deildarstjóri á Hlévangi í Keflavík.

Við bjóðum Maríu velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar í störfum sínum í Sunnuhlíð.

Á síðasta ári sameinuðust Deild 1 og Deild 2 í eina deild og hafa Nína Björnsdóttir og Helga Ragnarsdóttir stjórnað deildinni í sameiningu.  Báðar munu starfa áfram og verður Nína í hálfu starfi, aðalega á næturvöktum, en Helga verður í fullu starfi, mest á kvöldin og um helgar.   Við viljum þakka þeim Nínu og Helgu fyrir góð störf sem stjórnendur og óskum þeim velfarnaðar í störfum sinum fyrir Sunnuhlíð.

Sunnuhlíð - Kópavogsbraut 1c - Sími: 5604100 - Fax: 5604175