Sunnuhlíð

Lionsmenn mála hjúkrunarheimilið

Félagar úr Lionsklúbbnum Muninn eru þessa dagana að mála norður og austurhlið hjúkrunarheimilisins.  Byrjuðu þeir á að háþrýstiþvo húsið og hreinsa lausa málningu og eru nú að nota þessa góðu daga í maí til að mála húsið.  Síðasta sumar máluðu þeir suður- og vesturhliðina, sem er timburklædd.  Þetta er í fjórða sinn sem Lionsmenn mála hjúkrunarheimilið að utan frá því heimilið opnaði árið 1982.

Eins og áður er það Málning ehf. sem leggur til alla málninguna.

Öll þessi vinna erí sjálfboðin og sá stuðningur sem Lionsmenn og Málning ehf. veita Sunnuhlíð með þessum hætti er ómetanlegur og færir stjórn Sunnuhlíðar þeim innilegar þakkir fyrir.

Sunnuhlíð - Kópavogsbraut 1c - Sími: 5604100 - Fax: 5604175