Félagar úr Lionsklúbbi Kópavogs komu færandi hendi í dag þegar þeir gáfu Sunnuhlíð Völker hjúkrunarrúm, sem er að verðmæti um 500.000 krónur með virðisaukaskatti. Rúmið er keypt fyrir ágóða af sölu Sögu Kópavogs sem þe
ir félagar gáfu út fyrir nokkrum árum.
í gjafabréfi sem fylgdi rúminu segir:
Allir þeir sem hafa styrkt okkur með kaupum á Sögu Kópavogs sem klúbburinn gat úr fyrir nokrum árum eiga hlutdeild í þessari gjöf, en ágóði sölunnar, sem nú er lokið, hefur ávallt runnið til Sunnuhlíðar.
Stjórn Sunnuhlíðar færir félögum í Lionsklúbbi Kópavogs innlegar þakkir fyrir þessa gjöf og sem og aðrar gjafir sem þeir hafa fært hjúkrunarheimilinu. Stuðningur ykkar við rekstur Sunnuhlíðar er ómetanlegur.
