Sunnuhlíð

Rausnarleg afmælisgjöf

Í tilefni af 35 ára afmælis Kiwanisklúbbsins Eldeyjar í febrúar s.l. ákváðu félagar í klúbbnum að færa Sunnuhlíð 5 hjúkrunarrúm, náttborð, dýnur og gálga að verðmæti um 1.500.000.

Þeir félagar hafa oft áður fært hjúkrunarheimilinu góðar gjafir og stutt dyggilega við starfsemi þess allt frá upphafi, en klúbburinn er einn af stofnfélögum Sunnuhlíðar-samtakanna.

Stjórn Sunnuhlíðar óskar félögum í Eldey innilega til hamingju á þessum tímamótum og færir félögum kærar þakkir fyrir rausnarlega gjöf þeirra.

Myndin er frá afhendingu gjafarinnar.

Sunnuhlíð - Kópavogsbraut 1c - Sími: 5604100 - Fax: 5604175