Föstudaginn 28. mars s.l. kom Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, í heimsókn í Sunnuhlíð og enn fremur Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs. Meðal annars var rætt um stækkun hjúkrunarheimilisins.

Heilbrigðisráðherra var kynnt starfsemi Sunnuhlíðar, dagvistar og þjónustuíbúða, og honum sýnt húsnæðið. Rætt var við hann um hugmyndir um stækkun hjúkrunarheimilisins ásamt breytingum á núverandi aðstöðu og byggingu þjónustumiðstöðvar. Unnar hafa verið hugmyndir að stækkun hjúkrunarheimilisins til að koma til móts við þörf á fjölgun hjúkrunarrýma í Kópavogi og til að fækka tvíbýlum í Sunnuhlíð, en í dag þurfa 40 heimilismenn að deila herbergi með öðrum. Einnig hafa verið lagðar fram hugmyndir að byggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar til að hægt verði að þjóna aukinni byggð í nágrenni Sunnuhlíðar ásamt því að bæta þá þjónustu sem fyrir er.
Umsókn um framlag til þessara framkvæmda hefur verið send Framkvæmdasjóði aldraðra og óskað hefur verið eftir samstarfi við bæjaryfirvöld.
Fundurinn var mjög gagnlegur og fræðandi. Auk hugmynda um stækkun og breytingar var einnig rætt um aukna áherslu á þjónustu við þá sem heima búa og hvernig Sunnuhlíð geti komið að henni.
